Leiðtogarnir

Svífa á milli skýja
Svika fuglar
Svartir englar
Af illum eldsins krafti knýja
Kaldir vindar
Og kvikir djöflar
Hatri heimum vígja

Vígamenn nú er stjarnan rauð
Aftur enn er vonin dauð
Vígamenn farnir heim

Þið svikuð okkar þjóð
Og heima alla
Brátt mun renna blóð

Þið af öllum ljúgið
Með bros á vör
Og burtu fljúgið svo
Á burtu ykkar böl
Ykkar bræður svíkja
Engra kosta völ.

ÞK


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdi Kaldi

Djö.... á þetta eitthvað vel við þessa dagana.

Valdi Kaldi, 22.11.2009 kl. 19:10

2 Smámynd: Karl Tómasson

Helgi minn.

Það er margt skrítið. Kíktu á bláa disk 66.

Bekveúrtungu. K. Tomm.

Karl Tómasson, 24.11.2009 kl. 20:33

3 identicon

Daginn. datt i hug að senda þer link a þessa mynd sem eg fann i bunka af gömlum myndum hja moður minni:

http://www.flickr.com/photos/12278132@N07/3167759600/

Ekki veit eg hvor þu kannast við hana eða okkar folk, en Ingbjörg Hermannsdottir heitir hun, dottir Ragnheiðar Magnusdottur fra Prestsbakka a Siðu.

datt inn a siðuna þina þvi eg var að leita að myndum af staðnum. Forvitinn að vita hvort það se gömul jökulhvilft sem fossinn rennur ur.

kveðja, Magnus Axelsson

magnus axelsson (IP-tala skráð) 29.11.2009 kl. 23:34

4 Smámynd: HP Foss

Sæll
Amma mín talar stundum  um séra Magnús, langafa þinn þá, ég held nú samt að engir afkomendur þeirra séu fyrir austan, er það ekki rétt hjá mér?

Takk fyrir póstkortið, það er komið á desktoppið hjá mér :)

Gaman væri að vita hvað þú finnur út úr Seldalnum, en svo nefnist dalurinn upp af Fossinum, inn að Þórutjörn sem lækurinn rennur úr. Framan/ suðausturaf  tjörninni er Þórutjarnarhóll.

ef þig vantar myndir eða aðstoð er ég fús til að verða að liði.

Kv-Helgi

HP Foss, 1.12.2009 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband