Laugardagur, 28. mars 2009
Álftir á flugi
Fannhvíti vin,
ég finn það og heyri á vængjanna dyn,
komandi kvíðir þú leiðum,
kólnar á heiðum.
Saknaðarljóð,
syngur þú núna um læki og flóð,
blátærum ís eru bundin,
beisk verður lundin.
Upp rennur stund,
aftur þá líður vorið um grund,
lækirnir hoppa um hjalla,
hátt upp til fjalla.
Blómanna fjöld,
beygir í þakklæti höfuð um kvöld,
lágnættið varlega vefur,
veröld sefur.
Vinur minn kær,
verður þá söngur þinn mjúkur og tær,
vindana lætur þig leiða,
langt upp til heiða.
Fannhvíti vin,
fljúgðu þá með mér við kvöldsólarskin,
þangað sem þögnin mun lofa,
þreyttum að sofa.
Arnar Sigurðsson Ytra Hrauni
fæddur 1935
Athugasemdir
Karl Tómasson, 29.3.2009 kl. 10:13
Ég sem hélt að Helgi mágur minn væri 41 árs. Hann hýtur að vera 71 árs miðað við þetta.
Valdi Kaldi, 29.3.2009 kl. 12:44
Hver var að gefa Helga ''Vestur Skaftfellsk ljóð,, ?
Kjartan Magg (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 21:21
Glöggur Kjartan enda United maður.*
Fékk hana lánaða hjá ömmu. Snilldarbók, segir allt sem segja þarf.
HP Foss, 30.3.2009 kl. 21:23
Það er svolítið magnað Helgi, hvað ég hef alltaf fílað þennan ljóða áhuga þinn. Hann eigum við greinilega sameiginlegann eins og svo margt annað.
Mér er þetta minnisstætt allt frá því ég kynntist þér og frá öllum ferðalögum okkar Gildrufélaga. Þá var þegar farið að bera á þessu hjá þér.
Það er gott að festast ekki einungis í gömlu meistaraverkunum úr Skólaljóðunum, heldur vera opinn fyrir öllu, rétt eins og í tónlistinni.
Þú kemur alltaf á óvart minn kæri.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Tungunni.
Karl Tómasson, 30.3.2009 kl. 22:00
Þeir hafa greinilega verið að reykja sama stöffið í þessum Gildruferðalögum félagarnir.
Valdi Kaldi, 31.3.2009 kl. 09:14
Hvar fæ ég þessa bók???
Edda Sigurdís Oddsdóttir, 1.4.2009 kl. 22:09
Ég veit það nú ekki Edda, kannski á fornbókasölum?
Amma fékk sína bók 1963, er hún var gefin út 1962.
HP Foss, 2.4.2009 kl. 09:34
Þið ljóðaunendur þurfið líka að eignast ''Laufskálaljóð,,
Kjartan Magg (IP-tala skráð) 3.4.2009 kl. 08:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.