Sunnudagur, 6. apríl 2008
Morgunganga
Þaut í birtingu upp í Kaldársel og skellti mér á Helgafellið. Skokkaði frá bílastæðinu að rótum fjallsins með fallega nafnið og sótti á brattan. Verkið sóttist mér vel, enda í fínu formi og hundinn tók ég í fangið því mér leist ekki á hvað hann var orðinn móður. Mikið óskaplega er fallegt að horfa yfir Fjörðinn á svona fallegum morgni. Hvílík kyrrð, hvílíkt útsýni. Hvílík lygi.
Athugasemdir
Þú hefðir átt að labba hringinn í kringum Ástjörnina með mér í morgun. Hvílík kyrrð, frábært veður en lítið útsýni og alveg dagsatt. Frábærir þessir sólarmorgnar.
Valdi Kaldi, 6.4.2008 kl. 11:11
það var fallegt að keyra suðurlandið í dag þvílík fegurð og útsýni og finna vorlyktina frá bændunum.
kv solla
solla (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 18:04
Ha? Hvaða Suðurland!!!
HP Foss, 6.4.2008 kl. 19:18
Það var líka rosalega flott að ríða góðum gæðingi á ísilögðu vatni í blankalogni, heiðskýru og sólríku veðri, hér á norð-austurlandinu í fyrradag. Ætlið þið að fara segja mér að það sé komið vor á suðurlandinu ?
Kærar kveðjur úr vetrarríki á norðurhjara.
Ágústa (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 22:07
Já, góður töltari er töfrum líkur.
HP Foss, 10.4.2008 kl. 12:24
Já, það er hægt að fara í göngutútra í sveitinni minni, en það er nú svipað þar og hér í bænum, maður finnur vissulega einhverja afskun. En göngutúr a fallegum sumardegi upp í Þórutjörn er býsna góður túr. Svo geta þeir veitt sem hafa það í sér. Vertu velkomin að Fossi, bloggvinur sæll.
HP Foss, 12.4.2008 kl. 17:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.