Haukur í horni = Hjördís Kvaran

Að eiga hauk í horni er svona svipað og eiga bróður sér að baki.  Forsetanum og stórvini mínum var varla trúandi til að ganga fram með þeim hætti sem minni bloggarar hafa gert, bloggarar sem loka og læsa til hægri og vinstri, á allt og alla sem ekki eru með nákvæmlega réttu sýnina á hlutina, frá þeirra sjónahorni. Lent hef ég í því að vera hótað lokun á mig, var beðinn um að vera "skemmtilegur" og þar fram eftir götunum.

Hjördís Kvaran er hreinn og klár snillingur í því sem hún tekur sér fyrir hendur, virðist afar vel gefin kona, eins og ég hef reyndar áður sagt. Gott er fyrir þá sem hana þekkja að heiga hana að.


Kolvitlaus andskoti

Hann er búinn að vera kolvitlaus í allan dag, helvítis læti og hávaði mikill. Alveg magnað að þurfa að lifa við þetta ástand, að geta varla dregið andann eðlilega, geta vart um frjálst höfuð strokið. Ég er búinn að fa´mig fullsaddan af þessu eftir þennan vetur, skipti eftir skipti rýkur hann upp með þessum djöfulsins látum, kolbrjálaður og stirður.

Sínu verstur var þó dagurinn í dag, svo slæmur að ég lenti í átökum við hann og mátti vart að milli sjá hvor hefði betur um tíma.

Norðvestanáttin er reyndar versta áttin á Fossi.


Counterclockwise

Nú hefur Vinstri snúinn til hægri endanlega farið yfir strikið. Hvernig dettur manninum í hug að læsa síðu sem rekin er af Mogganum? Hefur kannski helvítis varðhundurinn nagað splunkunýjan ljósleiðarann í sundur? Er hann þá kannski í leiðinni búinn að murka úr honum líftóruna, orðinn kolvitlaus af helvítis hænsnaatinu? Eða er hann kannski kominn með ólæknandi suð í vinstra inneyrað eftir allt helvítis geltið?

Mér er spurn???


Að kaupa sér konu.

Þegar ég var yngri sá ég að menn kepptust hver um annan þveran við að ná sér í konu. Eltust við hvern gripinn af öðrum, suma væna en aðra ófrýnilega. Leit þessi var aldeilis ónákvæm og undir hælinn lagt hvernig þeir svo reyndust, þegar á hólminn var komið. Snoppufríðar stelpurnar áttu það til að vera hinar verstu húsmæður, félagarnir hurfu eins og dögg fyrir sólu. Snoppan hafði oftar en ekki breyst úr því að vera þessi undurfríða, undirgefna, dæmalaust skemmtilega stelpa í að vera drulluskítug, snarvitlaus, hundleiðinleg forynja þegar heima var komið og búið að slá undir plötuna.

Ég ákvað að fara aðra leið. Yfirleitt, áður fyrr og hingað til, fyrir utan þetta eina tiltekna atriði, tek ég röngu leiðina. ( Sbr síðastliðna helgi). Ég sá hve illa gat farið fyrir félögunum í þessum darraðardansi, hversu langt þeir gátu leiðst í átt til glötunar, einungis vegna lélegrar skipulagningar og kæruleysis. 
Ég fór að kíkja á karlmennina í kringum mig. Fór á stúfana og leitaði að vel útlítandi karlmönnum sem geisluðu af fegurð og hamingju. voru snyrtilegir til fara, áttu falleg börn og stífbónaða jeppa. Þegar ég var búinn að finna draumaprinsinn, hávaxna, stælta kappann sem nánast sveif um í stað þess að ganga, lét ég til skara skríða. Þetta var greinilega maður í góðu jafnvægi, maður sem var sáttur við Guð og menn. Hann hlaut að eiga góða konu. Um það var ekki ágreiningur.
Það er skemmst frá því að segja að ég einfaldlega bauð betur í konuna en hann.
Þetta er mín kona í dag og er ég afar sáttur. En um leið og hún fer að slaka á , þá má hann fá hana aftur.

Svona gæti saga Stöðvar tvö litið út ef sá miðill þyrfti að ná sér í konu, getur ekki látið sér detta í hug að finna sér sitt eigið efni heldur vill aðeins það sem Ruv á. Tek þar enska boltann og formúluna sem dæmi, þætti sem ég horfi ekki lengur á .

Svei Stöðvar tvö mönnum og megi þeir skammast sín!!!


Skemmtiferð

P3090055
Frá Miklafelli

P3090060
6 sleðar, 2 Polarishjól, engin Súkka

P3080033
það er eitthvað notalegt við að vera í Miklafellskofanum

P3090043
Gunnar var ekki að fíla kofann, svaf úti í skafli.

 


Valdi söngfugl ættarinnar

Þá er það ljóst að Valdi er söngfugl ættarinnar. Sigraði könnunina í ótrúlega spennandi kosningaslag. Ólafía frá Fossum hreppti annað sætið en Landbrotslordinn og krumlukreistarinn Dandri það þriðja.
Valdi er líklega að njóta fornrar frægðar en eins og margir muna var hann aðalsprautan í hljómsveitunum Volvo og Baggabandinu.  Bönd sem spiluðu flestar helgar á sumrin og var undantekningalítið fullt hús þar sem þeir voru.  Allavega fullt fólk.
Ólafía hefur á hin bóginn verið yfirvegaðri í sínum söng,  syngur ekki nema það sé pípuorgel í undirleik en syngur þá reyndar hátt.
ÉG veit ekki til þess að Davíð Andri geti sungið.
Valdi 29,3%
Óla 24,4%
Davíð Andri 19,5%

Konudagur- dagur kellinganna.

Konudagurinn er liðinn. Líka Valentínusardagurinn.  Legg þá að jöfnu, tek ekki þátt í uppgerðarfyrirlitningu þeirra sem segja nóg komið af því að apa alla skapaða hluti eftir kananum. menn belgja sig og sperrast allir við, segjast ekki taka þátt í svona vitleysu.  Stökkva svo uppí jeppann sinn og aka í bíó til að horfa á Die Hard 7. Jeppinn stendur þó uppúr öllu  sem frá Kananum hefur komið.

Ég læt þó þessa daga líða sem hljóðlegast hjá og fer mér að engu óðslega. það er ekki vegna þess að ég sé með ofnæmi fyrir þessum dögum, það er vegna þess að það passar ekki  hrjúfa persónuleika að fara í búð og kaupa eitthvað fyrir mína konu til að gefa henni á einmitt þessum dögum.
Geri það frekar einhverja aðra daga, slepp þannig við kjánahrollinn og hrútafýluna í troðfullum blómabúðum þar sem hver keppist við annan til að komast sem fyrst út undir bert loft, nývaknaðir eftir fyllerí gærdagsins, þar sem þeir eru að drepast úr móral vegna þess sem  þeir sögðu við stelpuna á símanum á trúnaðarskeiðinu um 5 leitið.

Nei, verum frekar það sem við erum skapaðir til, verum karlmenn og leyfum konunum að vera kellingar. 

 


Ingi vann.

Ingi tengdasonur vann makakönnunina, sem var meingölluð á allan hátt, aðeins hluti af mökunum birtust á síðunni.

Ný könnun verður brátt sett inn.


Nýir vendir sópa best.

það er hann Ingi sem virðist vera að rúlla upp makakönnuninni og er það nú aldeilis gott að sjá hvað hann er að falla vel að ættinni. Ég var hálf hræddur um að honum yrði ekki tekið, því hann er jú frá Ísafirði en raunin virðist heldur betur önnur.

Ég óska foreldrum mínu til hamingju með að vera loksins búin að fá tengdabarn sem sómi er af.


Besti makinn ?

Nú, þá er komið að því að við komumst að því í eitt skipti fyrir öll hver er með skársta makann, ég er ekki að segja að þeir sem koma illa út úr þessu skulu yfirgefa samkvæmið, allt eru þetta frambærileg fyrirbæri.

Þórdís engill.

Þórdís 36.4%
Ragga 18.2%
Sallý 13.6%
Berglind 11.4%
Óla 11.4%
Sólveig 4.5%
Brit 2.3%
María 2.3%

Já, það er ljóst að  Þórdís hefur unnið englakönnunina með nokkrum yfirburðum.

Næst á eftir kemur skörungurinn frá Hruna, Ragnhildur Andrésdóttir.
Það sem kemur kannski nokkuð á óvart er að María skuli enda í lang neðsta sætinu með aðeins eitt atkvæði, sennilega hennar atkvæði.

Eru ættmenni mín með uppástungu um næstu könnun?


Kalli Tomm

Hugsa mér mann

.. .einmitt núna, er að fylgjast með

 


Agnar ljúfasti bróðirinn á frá Fossum

Já, það fór svo að Agnar vann þessa keppni, reyndar var Pétur með yfirburði um tíma.

Ef ég hefið unnið íslandsmót í spretthlaupi, þá hefði ég verið sendur í lyfjapróf.
Pétur féll sem sagt á lyfjaprófi og voru öll stigin dæmd af honum sökum svindls.

Röðin var:

Agnar 40.6 %
Guðni   9,4 %
Pétur   9,4% ( stig fengin eftir núllun)
Steinar 3,1%
Hörður  3,1%

Ný könnun sett af stað.

 


Ég vann.

Ég vann þvergirðingakönnunina með naumindum,  Hlynur fór hættulega nærri.

Nýrri könnun hefur verið startað.


Það eru til vondir menn.

Til eru menn sem hamast á náunganum sem mest þeir geta, skeyta engu um skaðann sem slíkt getur valdið.  Fjölskyldur verða gjarnan fyrir barðinu á slíkum fautum, börnin særð og makar niðurlægðir. Þeir sem láta svona eiga gjarnan eitthvað óafgreitt hjá sjálfum sér,  setja markið á einhvern annan í stað þess að taka til í sálartetri sjálfs síns.  Virðist sem sumir haldi að nóg sé að telja sjálfum sér trú um eigið ágæti, telja sér trú um að það sem maður sjálfur gerir sé það eina rétta, að aðrir hafi rangt fyrir sér, þannig sé allt á hreinu.

Ganga gjarnan fram fyrir skjöldu í að boða fagnaðarerindið, boða betra líf og blóm í högum, að allir skulu lifa í sátt og samlyndi. Slíkt getur varla gengið þegar aðeins einn aðilinn má hafa skoðun á málum, þegar aðeins einn aðilinn verður að ráða. Ef allir þurfa að sitja og standa eins og sá hinn sami segir. Góða lífið upplifir aðeins sá sem fær að ráða, en þó aðeins í stutta stund.

Hann kann nefnilega ekki þessi mannlegu samskipti,  kann ekki að virða skoðanir annarra, kann ekki einu sinni að virða þá sem honum næst standa. Sá sem haldinn er þessari áráttu, eða veiki, gengur yfirleitt alla leið á frekjuskalanum og situr sjaldnast á friðarstóli í fjölskyldulífi frekar en annarsstaðar.

Ofbeldi er þar því miður tíður gestur,  höndin laus eins og hugurinn. Við þekkjum það svo hvernig á þeim málum er tekið, iðrunin takmarkalaus, eins og innihaldsleysið.  Lægra getur karlmaður varla lagst en leggja hönd á konu sína.

Vont er að verjast slíkum postulum, valdagræðgi þeirra er mikil eins og mannvonskan. Hatrið, heiftin, hefnigirnin,  leggst á vogaskálar drottnunartilburða þessara manna og gerir þá  beinlínis hættulega. Mótlæti þola þeir ekki frekar en nokkra gagnrýni. 

Slík mangerð er sannkölluð mannleysa.


Þverhausarnir

Svo eru það við, karlpeningurinn í ættinni, skiptumst í tvo flokka, við sem erum undir járnhæl kvennanna og hann þarna sem kann á þeim lagið. Hann er jú einn og tæplega flokkur, en allir vita hvernig Ólafur blómstrar í Borginni.

Við erum upp til hópa afar undirgefnir og þegjandalegir, og það sem við kannski viljum segja, er sennilega rangt.

Samt skal gæta jafnræðis og kjósa mesta þverhausinn af frændunum.


Íris Rut er sigurvegari Truntukeppninnar.

Þá er það ljóst, Íris er yfirtrunta frænknanna. Það kann að hljóma illa en satt að segja er það akkúrat hið gagnstæða, hún er best. Að vera mesta truntan í Fossafjölskyldunni ber vott um að viðkomandi beri höfuð og herðar yfir alla sem á eftir koma.

Íris er uppáhalds frænka mín.


Truntur

Það er með ólíkindum hvað truntur virðast safnast á sömu staðina.  Hópar þessir eru ekki árennilegir öllu jöfnu, hver truntan slær aðra, engin samstaða til staðar, með öllu óskiljanlegt að skaparinn skuli setja þær svo margar saman á sama staðinn.

Hverju truntustóði tilheyra nokkur góðmenni. Eru jafnan bældir og þjakaðir af ofbeldi truntanna og sér gjarnan á þeim. Ef ekki líkamlega, þá pottþétt andlega. Bældir líða þeir um grundir í leit að æti, koma heim á kvöldin með afraksturinn, þreyttir og illa til reika. Tekur þá næsta verkefni við, að moka undan truntunum og fóðra þær.

Svona stóð  ferðast mikið. Fer sveit úr sveit og bergmálar í hömrum þegar það fer um og undir tekur í hólum. Fáir standast slíku stóði snúning en þeir sem það gera, eru í góðum málum. Hingað til hef ég aðeins frétt af einum slíkum.

Sundurlyndi truntanna stendur þeim fyrir þrifum og veldur því að þær eiga erfitt með að samlagast venjulegum hópum og sífellt fleiri heltast úr lestinni og gerast venjulegar frænkur.

Mér þykir vænt um svona truntur.

 


Býsna var blótið gott!

Þorrablót Skatfellingafélagsins var afar gott, 150 manns, a.m.k., voru mættir í spariskapinu. Austur og vestur er ekki lengur dregið sér, en vart mátti greina Öræfinga frá Mýrdælingum, slík var einingin.

Að lokinni skemmtidagskrá og borhaldi dunaði dansinn glatt undir unaðsfagurri röddu Helgu  Möller og verður því vart með orðum lýst. Ljóst er að eitthvað hafa dömurnar slegið í hvað dansinn varðar, því mæðinnar hefur ekki orði vart í jafn miklum mæli og nú, pásu þurfti að taka á milli laga, væu þau fjörug. Verður það sett í lag fyrir næsta blót og þá mega þær vara sig!Blush


Þorrablót Skaftfellingafélgsins

Það verður þorrablót hjá Skaftfellingafélaginu um næstu helgi. Ég hef það fyrir víst að Skaftfellingar ætli að gera sér þarna glaðan dag, éta vel súran mat og ræða liðnar stundir, nú og kannski eitthvað nýtt í bland. Bland verður á staðnum og eflaust eitthvað til að glæða það með.  Fátt er jafn gaman og hitta gamla sveitunga og einnig þá sem maður hefur aldrei séð. 

Söfnum liði og gerum okkur glaðan dag, eins og í gömlu góðu dagana.

Aðgangseyrir er 3000 kr, sem er náttúrulega ekki neitt.!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband