Vorið nálgast með sól í hjörtum.

Páskarnir eru á næsta leiti og þegar þeir eru afstaðnir er vorið eitt framundan. Þrátt fyrir stórhækkað áburðarverð vil ég hvetja fólk til að bera vel á garðana sína, byrja að setja fyrsta skammt þegar grænu nálarnar eru að byrja að gægjast upp úr sverðinum. Leyfið því að spretta fyrst um sinn en slá hiklaust um leið og grasið nær 6 og hálum cm á hæð. Rakið vel og berið strax á aftur. Gætið þess að vökva ekki of mikið ofan í áburðinn því hætt er við að hann fari þá forgörðum.

Sláið garðinn vikulega allt sumarið, vökvið í lok heitra daga, berið svo aftur á um mánaðamótin júní júlí og sáldrið svo lítilræði mánuði seinna.

Með þessu móti fæst góð rækt í garðinn, hann verður fagurgrænn og þéttur. Alger óþarfi er að ráðast á garðinn með mosaeyði, tæturum og hænsnaskít, með þeim viðbjóði sem honum jú fylgir. Mosinn kemur af órækt og best er því að halda garðinum í góðri rækt.

Fátt er meira slakandi á fögrum sumarkvölum en sitja á stól og horfa á grasið sitt vökvast.

 

Ma¨ª-j¡Éj¨²n¨ª-04 043

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Jónsdóttir

Gefin eru ráðin góð
um grasræktina fína.
Gónt ég get á græna lóð
ef geymi ég ræðu þína.

með kveðju úr mosaþembunni í Kópavoginum.
Stína

Kristín Jónsdóttir, 2.3.2009 kl. 20:07

2 identicon

Já Helgi minn, eftir þessu verður fullt starf bara, ég segi baaraa að hugsa um garðinn sinn, já og dugar  ekki að hugsa eingöngu, dugar fyrir mig því eflaust sér pabbi þinn um þetta. (Nú var ég sniðug)

Bestu kveðjur frá Fossi

mamma (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 21:29

3 identicon

Aldrei bera á garðinn, allt á að gera til að hægja á þeim fjanda. Maður lendir þá ekki í því að hanga á slátturvélinni heilu og hálfu dagana. Það tekur svo mikinn tíma frá fjallgöngum og andaveiðum....kveður úr Hornafirði

Óskar Ara (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 22:51

4 identicon

Óskar ég ér sammála þér

Óla (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 09:43

5 identicon

Ég á tvær gerðir grasmótora sem breyta grasi í áburð og

svo á ég líka PZ-185 sem ég set aftan í bláa zetorinn og

ryð öllu niður í einum grænum! heppinn ég!!!!!

Þórir (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 17:18

6 identicon

Kæri vinur.

Ég sendi þér innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn, með von um gott og kærleiksríkt flæði.

Gunnlaugur B. Ó (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 12:16

7 Smámynd: Kristín Jónsdóttir

Sendi þér góðar kveðjur á afmælisdaginn kæri frændi. Ertu nú 39b eða ertu bara sáttur við raunveruleikann?

Kristín Jónsdóttir, 4.3.2009 kl. 21:45

8 Smámynd: HP Foss

41., svallkaldur og sáttur 

takk fyrir kveðjur.

HP Foss, 5.3.2009 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband