Þingmanns saknað.

Það er vont að missa Bjarna Harðar af þingi. Ég hef sagt að ég hef þá trú að enginn annar þingmaður veit hvar Skaftárhreppur er á landinu. Í það minnsta kæra þeir sig kollótta. Aðrir hafa frakar gert bölvun en gagn.

Ég hafði tröllatrú á Bjarna sem þingmanni Sunnlendinga og veit það að hann vann að góðum málum fyrir þá alla. Alla, ekki bara Selfyssinga og Hornfirðinga. Hingað til, og þá hér eftir, hafa þingmenn og ráðherrar þessa kjördæmis, utan Bjarna,  einblínt á þessa þéttbýliskjarna án þess að líta þessar fáu hræður utan þeirra viðlits. Til þess eru þær sennilega og fáar. Það er jú gjöfulast að ráðast á þéttasta berjalyngið en láta hin gisnari lönd og leið.

Eyjamenn hafa Árna.

Nú hef ég, genatíski framsóknarmaðurinn, sagt skilið við Framsóknarflokkinn, hann er ekki lengur sá flokkur sem stóð vörð um landsbyggðina alla, bændur og búalið. Vötn hans renna víst hér eftir til Evrópu, í gengum Lómatjörn og verður sennilega af lagður eftir næstu kosningar. Þingmenn flokksins verða svo endurnýttir í moðsuðu Samfylkingar. Þökk sé Halldóri og hans fólki.

Ég sé nú eftir að vera ekki í flokknum, því þá myndi ég segja mig úr honum.

Ps. Í virðingaskyni við Bjarna hef ég dregið hann efstan á bloggvinalistann, ofan við fjölskyldu og nána vini og verður hann þar fram að aðventu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já !

Steinar frá Fossum (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 23:01

2 Smámynd: Karl Tómasson

Bjarni virkaði alltaf vel á mig á þingi, virtist sannur maður, alþýðumaður.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 12.11.2008 kl. 17:44

3 Smámynd: Skákfélagið Goðinn

Snillar færsla hjá þér !

Öll vötn renna til Evrópu gegnum Lómatjörn.   Nei !   Vatnið á upptök sín í Lómatjörn.  

Vonandi botnfrýs hún í vetur ! 

Skákfélagið Goðinn, 17.11.2008 kl. 23:25

4 identicon

Ég er viss um að Dóri hefur farið til Kanarí og er núna á Klörubar

ansk vesen með þessa summu, ég þarf alltaf að fara í reiknivélina

Steinar frá Fossum (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband