Sandsmölun.

Fossmenn smöluðu "Sandinn um helgina. Eftir einn mesta úrhellismorgunn í manna  minnum, stytti loks upp og menn undu sér í verkefnið. Hver maður renndi sér á sinn stað og máttlitlir veðurguðirnir hrökkluðust undan með skottið á milli lappanna. Skildu þó eftir slatta af vatni sem við ösluðum upp undir kvið. Réttað var í gömlu réttinni á Hraunbóli, eftir fráveitingar úr réttargólfinu og áveitingar að magahólfinu, var miskunarleust dregið í sundur, Bjössa, Bjarna og Palla fé, til hægri og vinstri, allt eftir settum leikreglum. Leikreglum sem voru samdar fyrir mjög löngu og hefur ekki þurft að breyta.
Hraunbólsmenn voru síðan sem stoðin og styttan á bak við kallana, sem betur fer, því ber er hver að baki, nema sér bróður eigi.
Frábær helgi!

Sept 08 069   Sept 08 119

Sept 08 091  Sept 08 085

Sept 08 087  Sept 08 105

Sept 08 080  Sept 08 106

Sept 08 077

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að sjá myndir úr Hraunbólsrétt, þar er alltaf gaman.

mamma (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband