....

Það var tekin ákvörðun um að kaupa græjur í skólanum. Nemendafélagið stóð fyrir því og keyptar voru Marantz græjur af fínustu gerð. Þetta voru mikil tímamót í skólanum fyrir þá sem höfðu gaman af tónlist. Þeir nutu þess til hins ýtrasta og spiluðu sem mest þeir máttu. En þetta var líka stór stund fyrir þá sem höfðu ekki gaman af tónlist. Við sem höfðum ekki gaman af tónlist þurftum að hlusta á það sem í boði var í hvert skipti og ég held að þeir, sem voru í þeirri stöðu á fá að handleika þessar fínu græjur, hafi verið í innbyrðis keppni um hver gæti spilað hæst, hver gæti spilað sem þyngstu tónlistina, hver gæti spilað gófustu og biluðustu tónlistina án þess að kennararnir stoppuðu leikinn.

Sá þröskuldur var ansi hár, því kennararnir voru niðri á kennarastofu að reykja.  Þá sátum við, krakkarnir sem ekki vorum fyrir þessa tónlist, eins og dæmd og þóttumst bara hafa gaman af, því þarna voru eldri krakkarnir á ferinni og þeim skyldi fylgja. Vorum í raun að kveljast undan þessum ógurlegu hljóðum. Hefði ekki verið betra að kaupa eitthvað annað í skólann heldur en þetta ?

Ég er nú bara að hugsa um þetta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er gaman að sjá þig á 'ritvellinum' aftur...

Íris (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 20:53

2 Smámynd: Kristín Jónsdóttir

Já, spurning hvað hefði átt að kaupa í staðinn. Það hefði jú mátt endurnýja kúluspilin, manstu eftir þeim?

Kristín Jónsdóttir, 10.10.2007 kl. 22:34

3 Smámynd: Valdi Kaldi

Meira vælið alltaf hreint.  Ég, Halla Bjarna, Eva og fleiri duglegir krakkar lögðum mikið á okkur til þess að hægt væri að kaupa almennilegar græjur í skólann.  Haldið var happdrætti til fjáröflunar og veit ekki hvað og hvað.  Þessar græjur voru sem sagt keyptar fyrir peninga sem nemendur öfluðu og ég man nú ekki betur en að Helgi hafi eins og aðrir notið góðs af því að loksins voru til góð hljómflutningstæki í skólanum, sérstaklega þegar haldin voru skólaböll.  Truflaði tónlistin þig kannski þegar þú varst að æfa þig við að syngja Hamraborgina í frímínútunum?  Annars varstu nú svo helv... óþekkur að ég minnist þess nú ekki að tónlistin hafi náð að yfirgnæfa gauraganginn í þér.

Valdi Kaldi, 11.10.2007 kl. 12:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband