Laugardagur, 11. ágúst 2007
11.ágúst Margrét Helgadóttir 9 ára
Margrét mín afmæli í dag. Þennan dag fyrir 9 árum kom hún í heiminn, 7 árum seinna en bróðir hennar, sem var búinn að gefa upp alla von um að eignast systkyn. Eitthvað þótti okkur hann nú taka henni frekar fálega þegar við sóttum hann til að kíkja á spítalann, stuttu eftir fæðinguna. Snéri sér frá henni og vildi ekki fyrir nokkurn mun kjassast í henni. Þegar við fórum að ræða þetta við hann, sagðist hann bara ekkert þekkja hana og var því kurteisin uppmáluð.
Núna er hann 16 ára, fyrirmynd systra sinna sem dýrka hann og dá, enda hinn vænsti bróðir.
Athugasemdir
Til hamingju með stelpuna þína kæri vinur.
Takk fyrir salíbununa í gær. Hún gleymist seint.
K. Tomm.
Karl Tómasson, 11.8.2007 kl. 21:58
Til hamingju með ljónið og takk fyrir hamingjuóskir til annars ljóns.
Kristín Jónsdóttir, 12.8.2007 kl. 21:31
Til hamingju með skottuna þína!
Anna Lóa (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 19:46
Til hamingju aftur með afmælið Margrét mín. Vonandi verður gaman í dag þó engin sé amman viðstödd, það verða víst margir samt.
Kveðja til allra ein sem hefði viljað vera á staðnum
Ólafía Davíðsdóttir (IP-tala skráð) 15.8.2007 kl. 17:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.