Frá einmannaleika að heimþrá

2.safn 04 049 

Júlí er að verða búinn og ég er að falla í nett lyndi. Og þá er ég ekki að tala um léttlyndi. Þar eymir af gömlum gambra þegar kvíðinn settist að í hjarta sveitamannsins og dagarnir voru taldir niður þar til sumarkrakkarnir á Fossi fóru í bæinn.  Hurfu á braut með Austurleiðarrútunni og skildu mann eftir með hundspottið gjammandi í hælunum á manni. Ég horfði á eftir rútunni þangað til hún hvarf út fyrir Draugasteina. Snéri heim og bað hundinn að róa sig. Komdu hvutti.

Nú líður að því að Verslunarmannahelgin gangi í garð og einhvernvegin styttist þá í haustið. Grasið í vegkönntunum tekur að sölna og skyggja fer á kvöldin.

En hvað er ég að bulla þetta, kominn undir fertugt og löngu farinn að heiman. Þarf ekki að lengur að syrgja töffaranna úr bænum, þvert á móti er maður kominn með nett leið á einmitt töffurum í bænum.

Og hvað þá? Þá snýst dæmið algerlega við. Maður fer að þrá að komst í sveitina sína, horfa á sólina faðma brekkurnar sem virðast fegurri en nokkru sinni fyrr í haustblænum. Drifhvítar ærnar um allt með lömbin sín, rígvæn eftir sumarið. Maður þráir það mest af öllu að vera innan um kallana, kallana í sveitinni sem aldrei fóru suður og eru því ómengaðir sveitamenn, alvörumenn þar sem orð standa. Segja það sem segja þarf en ekki endilega neitt meira en það.

Já, svona er nú tilveran mögnuð.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karl Tómasson

Kallar geta verið skemmtilegir.

Karl Tómasson, 30.7.2007 kl. 16:26

2 Smámynd: HP Foss

Klukka mig? Hvað meinarðu? Er ég í eltingaleik?

HP Foss, 30.7.2007 kl. 19:45

3 Smámynd: Karl Tómasson

Ég hélt að hann væri að meina mig.

Karl Tómasson, 30.7.2007 kl. 20:43

4 Smámynd: Valdi Kaldi

Þrymur hefur örugglega ætlað að skrifa klikka því þú ert auðvitað klikkaður.  Varðandi heimþránna þá hélt ég að það væri veiki sem myndi lagast en hún lagast ekki neitt.  Ég held svei mér þá að hún versni eftir því sem árin líða.  Ég er nú ekki eins eldgamall og Helgi en nokkrum sinnum í viku velti ég því fyrir mér hvað ég væri nú eiginlega að gera þá stundinga ef ég hefði aldrei flutt á mölina.  Svo rankar maður við sér og reynir að telja sjálfum sér trú um það að lífið hérna sé svo miklu betra heldur en í fámenninu fyrir austan og færist síðan áfram um eina bíllengd.

Valdi Kaldi, 30.7.2007 kl. 21:48

5 Smámynd: HP Foss

Ég held að tlveran sé nú ágæt hér, mágur sæll. Værum við nokkuð betri þótt við hefðum ekki farið, værum hundfúlir að bíða eftir sjátrungunum að sunnan.

HP Foss, 30.7.2007 kl. 22:19

6 Smámynd: HP Foss

 Bloggið mitt nefndi ég eftir uppáhaldsmálshættinum mínum. Hann segir einhvernvegin það sem segja þarf og oft kemur hann upp í huga minn.. Hann er eitthvað svo myndrænn.

HP Foss, 31.7.2007 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband