Laugardagur, 16. júní 2007
Frekjur.
Ég hef tekið eftri því að fólk er farið að telja sig þurfa að hafa skoðun á hinu og þessu sem það heyrir. Hvað er það sem segir fólki að það sem hinn er að segja, sé rétt eða rangt, gáfulegt eða vitlaust? Hvað er það sem gefur fólki þann rétt að taka það sem viðmælandinn segir og gefa þvi einkunn? Hvað er það sem segir mér að hlutirnir séu réttari hjá þeim en hinum? Ég held að þetta kallist frekja.
Frekjur tröllríða öllu, menn vaða áfram, hvað sem það kostar, öllum brögðum er beitt. Menn sagðir ljúga, blóðhlaupnir í augum, stappandi niður fótum, garga menn á þá sem á vegi þeirra verða, ef ekki fer allt eftir þeirra höfði.
Ég hef óbeit á slíku fólki.
Athugasemdir
Lætur Ragnhildur ekki að stjórn þessa dagana?
Valdi Kaldi, 18.6.2007 kl. 14:08
Ég held að nú sé tímabært að Valdarnir drösli karlinum sem fyrst í fjósið og fjárhúsin á Fossi. Þaðan kemur minn maður alltaf endurnærður.
Ragnhildur er besta og fallegasta kona í heimi þegar hann kemur frá Klaustri. Þá er ég ekki að meina að þær séu neitt slæmar þarna á Klaustri, það er ekki það sem ég meina.
Nei nei nei nú kann þetta allt í einu orðið að virka þannig að Ragnhildur þoli engan samanburð en það er nú öðru nær.
Nú er best að hætta. Endilega komið karlinum í Klaustur.
Karl Tómasson, 19.6.2007 kl. 12:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.