Föstudagur, 6. apríl 2007
Föstudagurinn langi.
Sól, logn, blíða. Mikið getur veðrið verið gott. Börnin vakna með bros á vör og segja, "þetta er fallegur dagur." Mamma þeirra er vöknuð fyrir þó nokkru og bíður með heitt kakó og eggjabrauð. Ilminn leggur úr eldhúsinu, það er verið að baka brauð. Ég ríf mig á lappir og dreg frá glugganum. Þvotturinn hangir á snúrunni, konan er búin að hengja út á snúru ásamt því að setja dínuna í hengirúmið og morgunblaðið liggur þar tilbúið . Á borðinu er rjúkandi kaffi í bolla. Konan kemur með hrein föt handa mér, ég fer í þau og fer út í garð. Skríð uppí hengirúmið og leggst aftur með kaffibollann í hendinni. Ragnhildur tekur til við lesturinn, fer yfir það helsta sem er í mogganum í dag. Ég klára kaffið og læt hugann reika, reika í sveitina mína þar sem allt virðist grænna en annarsstaðar. Ég dotta og gott ef mig dreymir ekki Grágæsarhólinn, heyskapinn þar í kring, árin sem allt var bara eins og dagurinn bauð, mamma kom út í flekk með kjötbollur og kartöflumús. Ég vakna eftir hálftíma og heyri að Ragnhildur er komin í dánartilkynningarnar. Enginn hefur látist sem ég þekki, sem er útaf fyrir sig gott. Eftir annan hálftíma er lestrinum lokið og ég fæ aftir í bollann, skelli því í mig í einum teig. Polarisinn bíður gljáfægður í innkeyrslunni og er stefnan tekin til fjalla. Ég stekk inn, tek nestið sem konan fann til áður en ég vaknaði og fer í nýþveginn útivistargallann, Kyssi konuna bless, hún biður mig um að fara varlega og spyr hvenær best sé að hafa kvöldmatinn. "Líklega um átta leitið", segi ég , "þá er ég búinn að fara í bað og leggja mig aðeins." Ég legg af stað og fjölskyldan stendur á tröppunum og veifar.
Hvenær verður þetta svona? Ha?
Athugasemdir
Konan mín ætlar að hafa matinn tilbúinn um kl. 19 í kvöld. Þessu seinkar öllu hjá henni vegna skúringanna hjá henni á heimilinu. Það verður framlæri í matinn.
Kær kveðja. Kalli Tomm.
Karl Tómasson (IP-tala skráð) 6.4.2007 kl. 18:05
Hún Ragnhildur er yndisleg og þú ert vanþakklátt gerpi!
Rúnarsdóttir, 6.4.2007 kl. 23:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.