Kemur hún, eða ekki?

Það var komið sumar. Rútan kom í gær,ég beið við brúsapallinn og þóttist vera að bíða eftir mjólkurbílnum . Sólin skein og það var mjög heitt. Hitinn var svo mikill að fæturnir mínir voru að stikna þegar sólin skein á stígvélin. Ég dinglaði löppunum til og frá til að flugurnar skriðu ekki ofání stígvélin. Hefði kannski átt að þvo þau betur í gær. Skyndilega birtist rútan í Draugasteinunum og hjartað tók kipp. Skyldi hún vera með henni? Allt í einu fór ég að hafa áhyggjur af fótabúnað mínum. Hvaða eiginlega rugl er þetta? Hefði maður nú ekki átt að vera betur búinn til fótanna? Hefði maður ekki átt að fara í gúmmískóna fyrst maður var nú að bíða eftir rútunni. Hvað ef ég þarf nú að fara inn í rútuna og flugnagerið á eftir mér. Rútan full af Reykvíkingum, kannski. Jæja, það var og seint og ekki var nú bót af því að fara út þeim. Rútan nálgaðist óðfluga eftir óvenju holóttum veginum og ég þóttist sjá það á ökulagi bílstjórans að hann ætlaði að stoppa. Hún er þá líklega með.  Ég spratt á lappir og hundinum brá svo illilega, þar sem hann lá í fasta svefni við hlið mér að hann datt fram af pallinum með látum. Rútan staðnæmdist við pallinn og bílstjórinn opnaði harmónikkuhurðina. Ég vatt mér að hurðinni og stakk hausnum inn í gættina. Rútan var smekkfull af ferðamönnum sem ráku stór augu þegar þau sáu kappklæddann sveitamanninn í 23 stiga hitanum. Ferðamennirnir voru allir í stuttbuxum og berfættir í Jesússkónum sínum. Það þótti mér nú bjánalegt enda fóru þeir fljótt að finna fyrir mistökunum þegar flugurnar gerðu orrahríð að fögrum leggjum fransmannana.
Ég kannaðist við bílstjórann frá því í fyrra. " Jæja stráksi, ertu kominn að taka á móti henni? Ha,,,? Ég er nú bara að ,,, var að ná í kýrnar".  Stamaði ég. "Jæja, en hún er ekki með í þessari ferð. Hún kemur á fimmtudaginn. " Sagði bílstjórinn og virtist algerlega sjá í gengum mig. " Nú er það svo?" sagði ég og þóttist nokkuð sama. Vonbrigði mín voru mikil og sporin þung þegar ég gekk heim traðirnar. Ég fór beint til upp í gamla bæ.
"Sveinn, verkfærakistan þín kemur ekki fyrr en á fimmtudaginn"
" Nú, jæja? Það gerir ekkert " Sagði Sveinn og Laufey gaf mér flatköku fyrir ómakið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdi Kaldi

O ég sem hélt að þú hefðir verið að bíða eftir henni Ragnhildi.

Valdi Kaldi, 3.3.2007 kl. 01:48

2 identicon

ég tek undir með honum Valda, ég hélt að þetta snérist um annað en verkfærakistu !

Annars yrðirðu góður rithöfundur, svei mér þá !

Kv. Jónki

Jónki (IP-tala skráð) 3.3.2007 kl. 18:53

3 identicon

Já sammála Jónka, þú yrðir ekki slæmur rithöfundur.  Það var frábært að lesa þetta.  Eins og að lesa upp úr skáldsögu.  En þú spurðir mig hvort ég væri skyld Sveini Björnssyni.  Afi minn og amma voru Eiríkur Björnsson og Ágústa Ágústsdóttir í Svínadal, Jón Björnsson (eða Nonni ) bróðir afa bjó þar einnig, en dó síðasta haust, þannig að Sveinn Björnsson hefur verið bróðir afa.  Þá hefur þú það, takk fyrir frábæra síðu, hún er þess virði að heimsækja.  Kær kveðja að norðan.

Ágústa Á. (IP-tala skráð) 3.3.2007 kl. 22:50

4 identicon

Fyndið að enda hérna inni þegar ég er að svindla á netinu og athuga hvað fólk hefur að segja um GÍS flokkinn í X-factor þar sem sú yngri er góðvinkona mín Vildi kasta kveðju á gamla

Harpa Lilja (Davíð Már, ef þú kveikir ekki hver ég er) 

Harpa Lilja (IP-tala skráð) 4.3.2007 kl. 17:08

5 identicon

Gaman að sjá hvað margir hfa áhuga á að skoða síðuna hans Helga.

Annars á sá kappi afmæli í dag, til hamingju vinur.

kær kv. mamma.

mamma (IP-tala skráð) 4.3.2007 kl. 17:58

6 identicon

Til hamingju með daginn Helgi kv.Laufey

Laufey (IP-tala skráð) 4.3.2007 kl. 19:11

7 identicon

Til hamingju með afmælið gamli! :)  kv. Jóna Hulda

Jóna Hulda (IP-tala skráð) 4.3.2007 kl. 21:11

8 Smámynd: Valdi Kaldi

Til hamingju með daginn.  Mér finnst þú alltaf vera að yngjast.

Valdi Kaldi, 4.3.2007 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband